Leitin að vorinu er æsispennandi og bráðfyndin saga ætluð átta til tólf ára lesendum. Þetta er fyrsta bókin af þremur um vinina ólíku og hættuför þeirra til að bjarga heimabyggð sinni.
Sigrún Elíasdóttir býr í Borgarfirði og kann jafn vel við sig í félagsskap fólks og dýra. Þetta er fyrsta skáldsagan sem hún skrifar fyrir börn. Skrímsli eru í uppáhaldi hjá Sigmundi Breiðfjörð teiknara, sem myndskreytti söguna.