Velkomin í Glæpaborgina – borg þar sem glæpi er að finna á hverju götuhorni. Stórhættuleg leyndarmál, flókin rán og kaldrifjuð morð eru daglegt brauð á þessum slóðum. Lögregla borgarinnar er búin að missa stjórn á málunum.
MicroMacro er samvinnu-rannsóknarspil. Saman leysið þið málin, finnið hvaða ástæður lágu að baki, finnið sönnunargögn og komið þrjótunum í grjótið. Glöggt auga er jafn mikilvægt og góð rökhugsun – Þetta er alvöru rannsóknarvinna!
Hver rannsókn samanstendur af nokkrum spurningum sem leikmenn þurfa að finna svörin við á risastóru borgarkorti. Kortið sýnir þér borgina í tíma sem rúmi, svo þú sérð oft sömu persónuna á mismunandi stöðum í borginni, og í byggingunum, og þú þarft að púsla saman atburðarás, finna út hvert einhver fór, eða finna aðrar upplýsingar sem tengjast málinu.
Spilið er hugsað fyrir 1-4 leikmenn og tekur hver rannsókn um 15-45mínútur í spilun. Alls eru 16 mismunandi sakamál í kassanum.
MicroMacro vann hinn eftirsóttu „Spiel des Jahres“ árið 2021!