Einhvers staðar í óbyggðunum eru Ellie og vinir hennar í felum.
Það hefur verið ráðist inni í landið þeirra. Fjölskyldur þeirra og vinir eru fangar. Veröld þeirra hefur umturnast á einni nóttu. Og nú hefur vinahópurinn tvístrast. Tvö þeirra hafa lent í höndum óvinanna.
Nokkur úr hópnum fara í könnunarleiðangur og finna annan uppreisnarflokk sem er að fara að berjast við óvinina – en hver eru þau og er þeim treystandi?
Bók 2 af 7.