Catan Sæfarar Grunnspil (íslensk útgáfa)

6.795 kr.

Heyrir þú hvernig vindurinn rífur í seglin? Skipin þín bíða, stígðu um borð!

Enn meiri fjölbreytileiki fylgir þessari stækkun á Landnemunum á Catan. Með tilurð skipanna bætast einungis við örfáar nýjar reglur en óendalega margir möguleikar í spilun.

CATAN… er komið í byggð. Til að smíða skip þarf timbur og ull. Skipin eru sett niður meðfram strandlengjunni og auðvitað einnig út á opið hafið – alltaf á mörkum tveggja sexhyrndra reita. Átta spennandi ævintýri bíða þín: Ferðastu í átt að nýjum ströndum, lifið af Eyjurnar fjórar og farðu í könnunarleiðangra um þokulögðu Eyjaálfuna. Eftir að hafa ferðast yfir eyðimörkina kemur þú að týndum ættbálki og kaupir af honum dásamleg efni fyrir Catan. Ef þú hefur nægan styrk til að verja Catan gegn árásum sjóræningja færðu að lokum að byggja hin ótrúlegu 5 undur Catans. Einnig er hægt að raða leikborðinu saman á þinn eigin máta með óteljandi útfærslum.

Á lager

Vörunúmer: 49-9002 Flokkar: ,
Þú þarft að skrá þig inn til þess að fá tilkynningu.
Vefverslun Nexus notar vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsins.