Í ljósi nýrra samkomutakmarkana verða eftirtaldar breytingar í Nexus Glæsibæ:
- Spilasalur tímabundið lokaður.
- Opnunartími verður 11:30 til 22:00 alla virka daga og 12:00 til 18:00 um helgar.
- Kvöldopnun á mánudögum byrjar mánudaginn 12. október.
- Til að tryggja að rúmt sé um viðskiptavini verður fjöldi viðskiptavina og starfsfólks í versluninni (sem er rúmlega 600 m2) takmarkaður við alls 50 manns. Gæta þarf eins metra reglunnar, en Nexus mælir með tveim metrum þar sem hægt er.
Ef þú ert í áhættuhópi og vilt heimsækja verslunina, hafðu samband í síma 552 9011 og fáðu ráðleggingu um hentugasta tímann fyrir heimsókn.
Einnig bendum við fólki í áhættuhópum á möguleikann að panta í vefverslun, velja að sækja í Glæsibæ, hringja þegar á staðinn er komið og við komum með vörunar út í bíl.
Nexus hlýðir Víði