Það er von á tilslökunum á samkomubanninu í byrjun maí, en þær slakanir duga ekki til að opna spilasalinn aftur. Hámarksfjöldi fer sennilega upp í 50 manns úr 20 manns en þar sem 2 metra reglan verður ennþá í gildi þá er ekki hægt að spila mann á mann eða í hópum. Spilasalurinn bíður því rólegur eftir fleiri tilslökunum, vonandi í lok maí eða byrjun júní.